HLAÐVÖRP

13 Oct, 2022
Í þessum þætti ætlum við að ræða um tengsl og ávinning þess að eiga í góðum tengslum við fólk sem að marga ef ekki að allra mati er lífsnauðsynlegur þáttur til að öðlast hamingju. Endilega deilið þessu fyrir okkur! Hérna er meira um píramýda Maslow https://www.simplypsychology.org/maslow.html
13 Oct, 2022
Í þessum þætti tölum við um gildi Sjálfsmyndar. Hversu mikilvægt það er að eiga heilbrigða og sterka sjálfsmynd og ávinninginn af því að stuðla að heilbrigðri sjálfsmynd. Við vonum að þið njótið vel og þökkum kærlega fyrir hlustunina.
13 Oct, 2022
í þessum þætti tölum við aðeins um að hafa stjórn á orðum okkar. Það sem við segjum getur haft ótrúlega sterk og mikil áhrif á fólk í kringum okkur. Annað hvort slæm eða góð. Taumhald er þjálfun sem fæst með stöðugri og samviskulegri ástundun. Við höfum getuna til að skapa góðar jafnt sem slæmar aðstæður með kraftinum sem liggur í orðum okkar. Gættu þess því hvaða orð líða af vörum þínum: Framtíð þín veltur á því!
11 May, 2022
Í þessum þætti förum við yfir gildið að hlusta og áhrif þess á okkur sem einstaklinga og pör. Getur það haft áhrif á raunveruleika okkar sem og samskipti að læra að hlusta á aðra? Endilega deilið þættinum fyrir okkur og við þökkum ykkur kærlega fyrir að gefa ykkur tíma til að hlusta á okkur.
03 May, 2021
Meðvirkni, áföll,
04 Dec, 2020
Í þessum þætti tölum við um hvernig er hægt að eignast góð samskipti í parsambandinu.
14 Sep, 2020
“Áður en leiðir skilja og 6 sek kossinn” Áður en leiðir skilja á morgnanna, verjið 2 mín í að spjalla við maka ykkar til að uppgötva alla vega einn ahugaverðan viðburð sem mun eiga sér stað um daginn hjá honum/henni. Munið svo að kveðja hvert annað með kossi sem endist allavega í 6 sekúndur (þekktur sem 6 sek. kossinn). Þetta gerið þið svo alla virka daga. “Aðdáun/ástúð og þakklæti/þakklátssemi” Til að viðhalda innilegu parsambandi þurfum við að gera og tjá ákv. þætti/hluti. Það er ekki nóg að hafa góðar, þekklátar hugsanir um makann, það er mjög mikilvægt að orða þær upphátt og láta hann/hana vita. Reglulegar tjáningar af aðdáun og þakklæti gagnvart maka hjálpar okkur að byggja upp ástar grunn. Hér eru nokkrar aðferðir til að gera það: · Deildu einhverju um persónueinkenni maka þíns og ákv. atvik þar sem þetta karaktereinkenni kemur sterkt fram: Dæmi: Ég dáist að því hvað þú ert (umhyggjusöm, nærgætin, góð, kröftug, blíð, ljúf og skilningsrík) sérstaklega áðan þegar þú varst að leika við dóttur okkar. · Gríptu maka þinn að því að gera eitthvað “rétt” og þakkaðu fyrir það. · Sendu tölvupóst/sms eða hringdu yfir daginn og láttu maka þinn vita að þú sért að hugsa til hans/hennar. · Stingdu skrifaðri ástarkveðju í bílinn/veskið hennar/hans. Heilsaðu maka þínum með kossi þegar þið hittist. Finnið svo tíma þar sem þþið getið átt samræður sem losa um streitu í líkamanum. Hvernig þið náið að halda utan um streitu skiptir sköpum fyrir parsambandið. Rannsóknir hafa sýnt að pör sem hafa náð að halda utanaðkomandi streitu frá parsambandinu sínu eins og hægt er gátu viðhaldið jákvæðum breytingum í sambandinu til lengri tíma. Episode is Live Published: Sep. 14, 2020 @10AM Edit Unpublish Add a Transcript Get episode better indexed by search engines. Add Chapter Markers Listeners can tap through & see what’s coming up. Create a Visual Soundbite Best way to share to social media for engagement. Share Episode On Facebook Twitter LinkedIn More Options Email Link to Episode Direct Link to MP3 Embed this ONE Episode View Episode Stats
09 Jul, 2020
Makinn hlustar ekkert á mig. Við heyrum þessa setningu svo oft og er hun grunnurinn að tengslaleysi. Í þessum þætti skoðum við hvernig ég get orðið góður hlustandi! Æfið ykkur endilega á þessu. Spurningar sem þú getur spurt á meðan þú hlustar: Hvað ertu að upplifa? Hvað annað ertu að upplifa? Hverjar eru grunnþarfir þínar hérna? Hvers óskar þú þér helst? Hvernig þróaðist þetta allt? Hverjir eru aðal karakterarnir í þessum grunn tilfinningum sem þú ert að tala um? Hvað viltu raunverulega segja hérna? Og við hvern? Hvaða tilfinningar eru hér sem þú óttast að tala um? Eru einhverjar blandaðar tifinningar hér? Hverjar eru þær? Hverjir eru valmöguleikar þínir eins og þú sérð þá? Hverjir eru + og - við valmöguleika þína? Upplifir þú að þetta hafi haft áhrif á samband þitt (eða önnur sambönd) ef svo, hvernig? Er einhver möguleiki á að þú hafir viljað gera hlutina öðruvísi? Ef svo, hvernig? Hverjar eru skyldur þínar hér? Áttu einhverja möguleika? Hvers væntir þú af mér? Hvað segja gildi þín þér hérna? Hugsaðu um einhver sem þú lítur upp til, hvað myndi hann eða hún gera og hvernig myndi viðkomandi sjá þessar aðstæður? Tjá skilning og samkennd á meðan þú hlustar: Ég get sett mig í þín spor Þú hlýtur að upplifa þessar aðstæður erfiðar/vonlausar Þú ert í erfiðum aðstæðum hérna Ég get fundið sársauka þinn Ég vildi óska að þú þyrftir ekki að upplifa þetta Þetta hljómar virkilega illa og hlýtur að taka á Þú hlýtur að upplifa þig hjálparlausa/n Ég er algjörlega sammála þér Þú hljómar virkilega sannfærandi Ég skil mjög vel að þú sért í uppnámi Ég held þú hafir rétt fyrir þér hérna Ég skil, leyfðu mér að draga þetta saman, það sem þú ert að upplifa hér er... Hlustunar æfing - Skiptist á að spyrja hvert annað þessara spurninga: Notaðu þá listann á undanförnum bls. til að hjálpa þér að verða góður hlustandi Segðu mér hvað í heiminum fær þig til að upplifa þessar tilfinningar: Reiði sorg hrædd/ur/áhyggjufull/ur vonglaða/n Hamingjusama/n Bjartsýn/n Örvængingarfull/ur Streitufulla/n
30 Mar, 2020
Dagleg samskipti okkar við makan stuðla að því að við lærum að tengjast! Þessi samskipta uppskrift minnkar ágreining í parsambandinu.
23 Mar, 2020
Við tölum aðeins um samskipti, samskiptabresti og hvernig við getum lært af átökum og hvernig við lærum að taka samskiptin okkar uppá hærra plan!
Hlaða fleiri hlaðvörpum
Share by: