Á síðustu vikum hefur Lausninni borist mikill liðstyrkur í þremur frábærum samstarfsmönnum sem við kynnum nú stolt til leiks.
Fyrsta ber að telja Berglindi Björk Hreinsdóttur en hún brennur fyrir því að vinna með fólki, veita stuðning og styrk svo einstaklingar nái að blómstra og nýta þá hæfni sem býr innra með hverjum og einum. Hún hefur langa reynslu sem stjórnandi og sem stjórnanda- og mannauðsráðgjafi. Í þeim störfum hefur hún öðlast mikla reynslu og skilning á mannlegri hegðun, samskiptum á vinnustöðum og því að vera stjórnandi og þær áskoranir sem þeim störfum fylgja. Að auki hefur hún sótt fjölmörg námskeið um samskipti á vinnustöðum.
Á starfsstöð á Akureyri kemur Sigurbjörg Ósk Sigurðardóttir til liðs við okkur. Ó́sk hefur starfað í leikskóla í mörg ár og sinnir þar jógakennslu, listsköpun og hreyfingu með börnunum. Einnig starfar hún sem jógakennari fyrir fullorðna og sinnir eigin listsköpun í frístundum. Ósk hefur aðstoðað fólk með markþjálfun frá árinu 2016 og hefur brennandi áhuga á því að hjálpa fólki að gera lífið skemmtilegra og innihaldsríkara. Í markþjálfunarsamtali skapast rými til að hugsa um og koma orðum að hvað það er sem skiptir virkilega máli í lífi hvers einstaklings, skoða hvar eru tækifæri til vaxtar og hvaða leiðir eru færar til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að. Þar er horft fram á veginn, einblínt á styrkleika einstaklingsins og hindranir lagðar til hliðar.
Þá höfum við einnig fengið sálmeðferðarfræðinginn Heiðrúnu Smáradóttur til liðs við okkur en hún býr í BNA og er því eingögnu með fjarviðtöl eins og er. Hún er með B.A. gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri og hefur einnig loking masters námi í sálmeðferðarfræði frá John F. Kennedy háskóla í Kaliforníu. Í því námi var lögð mikil áhersla á sambönd, fjölskyldurtengsl einstaklinga, klínískar viðtalsmeðferðir, fjölskyldu- og para ráðgjöf, barnasálfræði og fleira. Heiðrún hefur starfaði sem starfsnemi í sálmeðferðarfræði síðan Október 2019 þar sem hún starfaði í áfallateymi innan San Jose borgar í Kaliforníu. Þaðan fór Heiðrún að vinna með konum sem voru ýmist í eða að koma sér úr ofbeldissamböndum. Einnig vann hún þar með háskólanemum sem glímdu við ýmislegt en þá aðallega þunglyndi og kvíða.
Við bjóðum þessar kjarnakonur innilega velkomnar í Lausnarfjölskylduna.
Allur réttur áskilinn | Lausnin fjölskyldumiðstöð ehf.